Karfan þín er tóm

Siðareglur

Fyrirtækið og starfsumhverfi

Við erum liðsheild og störfum saman að því að gera gott fyrirtæki enn betra.

Við förum að lögum og vinnum í samræmi við gildandi reglugerðir. Sérstök áhersla er lögð á að öryggismál og aðbúnaður uppfylli nútímakröfur. Starfsfólki ber að sýna aðgát í starfi og fara að öryggisreglum

Allir starfsmenn eru metnir eftir eigin frammistöðu og hafa tækifæri til frekari starfsþróunar óháðkyni.

Við virðum trúnað og leggjum áherslu á heiðarleika, virðingu og ábyrgð gagnvart fyrirtækinu,viðskiptavinum og birgjum.

Við sýnum góða umgengni og berum virðingu fyrir fjármunum og eignum Fagkaupa.

Samskipti

Lögð er rík áhersla á gagnkvæma virðingu og traust. Enn fremur góðan starfsanda, sterka liðsheild, vellíðan og jákvætt viðhorf.

Við látum okkur varða velferð samstarfsmanna og tökum tillit til aðstæðna hvers annars. Við freistum þess að samræma kröfur fjölskyldulífs og vinnustaðar. Á vinnutíma helgum við okkur starfinu og vinnum skipulega.

Við styðjum hvort annað. Við hrósum fyrir það sem vel er gert og umberum mistök.

Áhersla er lögð á bein persónuleg samskipti: sem og skýrar boðleiðir og öflugt upplýsingastreymi.

Einelti og kynferðisleg áreitni er ekki liðin.

Þjónusta og samskipti við viðskiptavini og samstarfsaðila

Við höfum það að markmiði að veita framúrskarandi þjónustu.

Við eigum allt okkar undir ánægðum viðskiptavinum og við leggjum okkur fram um að leysa hratt úr
þörfum þeirra á sem hagkvæmastan hátt.

Við erum traust og sýnum viðskiptavinum okkar áhuga og ráðum þeim heilt.

Við stundum frjálsa og heiðarlega samkeppni og forðumst að gera nokkuð sem túlka mætti sem tilraun
til þess að ná viðskiptum fyrir annað en okkar eigin frammistöðu og orðstýr. Við gætum þess að vera
hvorki veitendur né þiggjendur í neinum þeim mæli sem kveikt gæti efasemdir um heilindi eða
hlutlægni í viðskiptum.

Við erum góður fulltrúi Fagkaupa á öllum atburðum sem tengjast fyrirtækinu svo sem fundum,
kynningum og ráðstefnum: bæði innan lands og utan. Áhrif áfengis eða annarra vímuefna má aldrei
sjást á starfsmanni meðan hann rækir hlutverk sitt fyrir fyrirtækið.

Code of conduct

The company and the working environment

We are a team, and we work together to make a good company even better.

We comply with the law and work in accordance with current regulations.

Special emphasis is placed on safety issues and equipment meeting modern requirements. Personnel must show the utmost care while at work and follow every safety rule that apply. Each employee is evaluated according to his/her own performance and all employees have the same opportunity to further their professional development independently.

We expect confidentiality and emphasize respect, honesty, and responsibility towards the company, customers, and suppliers.

We show good behavior and respect Fagkaup funds and assets.

Communication

There is a strong emphasis on mutual respect and trust. Furthermore, good morale, a strong team, well-being, and a positive attitude.

We care about the well-being of our colleagues and consider each others circumstances. We do our best in harmonizing the demands of family life and the workplace. During working hours, we dedicate ourselves to our work and work orderly.

We support each other. We praise what is done well and tolerate mistakes. Emphasis is placed on direct personal contact, as well as clear communication channels and powerful information flow.

Bullying and/ or, harassment, sexual harassment, or any kind of violence is not tolerated.

Service and commmunication with customers and partners

We aim to provide excellent service. Our mutual goal is the satisfaction of our customers, and we do our best to resolve their every need as quickly and effectively as we can.

We are reliable and show interest to our customers and give them honest advice.

We conduct free and fair competition and avoid doing anything that could be interpreted as an attempt to gain business for anything other than our own performance and reputation.

We will be careful neither to be the givers nor the takers to any extent which might raise doubts about the integrity or objectivity of our business practices.

We are a good representative of Fagkaup at all events related to the company, such as meetings, presentations, and conferences: both within the country and abroad. This code of conduct applies to all employees at any setting where they represent Fagkaup. The influence of alcohol or other drugs must never can be seen on the employee while performing his role for the company.

Síðast uppfært: 20.08.2024