Karfan þín er tóm

Varma & vélaverk á Grænlandi

föstudagur, 8. nóvember 2013

Varma & vélaverk sá nýverið um uppsetningu og keyrslu á gufu-ketilkerfi fyrir Ístak í Pakitsoq á Grænlandi.


Kerfið sem samanstendur af 14 MW, 11000V rafskautakatli og varmaskipti var notað til álagsprófunar á virkjun sem framleiða mun rafmagn fyrir bæinn Iluliss.


Kerfið sem hannað er af VoV, vinnur í hringrás gegnum varmaskipti en þar er gufan þétt áður en hún fer aftur inn á ketilinn.

Prófanir tókust vel og skilaði ketillinn mest 14,4 MW. Vatnshitaketill sem VoV afhenti fyrir ári síðan var einnig notaður við prófanir en stærð hans er 2,4 MW. Viðbótar álag fékkst síðan frá bænum Ilulissat og vinnubúðum Ístaks á svæðinu, en samanlagt fór álagið mest upp í 20,03 MW.

Þetta er annað verkefnið sem VoV leysir fyrir Ístak á Grænlandi, en samskonar prófun átti sér stað í Sisimiut fyrir fjórum árum.

Af því tilefni var framkvæmdastjóra Varma og Vélaverks  boðið á veglega afmælishátíð
sem haldin var í verksmiðju Silhorko í Árósum í Danmörku.  Myndin er af starfsfólki verk-
smiðjunnar og samstarfsaðilum. Silhorko framleiðir ýmiskonar tæki til hreinsunar á vatni.
Velflestir gufukatlar á íslandi notast við tæki frá Silhorko til afjónunnar á fæðivatni.